ISI
The International School of Iceland (ISI) is a private elementary school housed in an Icelandic public school, Sjálandsskóli. The school offers an international educational program to children in grades K-7.
The International School is a member of The International Primary Curriculum (IPC). Through thematic units we strive to create an atmosphere of "great learning, great teaching, great fun". Literacy, math, music, art and gym are taught separately. All students study Icelandic. For those students whose stay in Iceland is temporary, the emphasis is on the spoken language and Icelandic culture, whereas Icelandic students focus more on reading and writing. Instruction takes places within small classes and pull-out programs.
Dual Language Immersion Program
The dual language immersion program, now in its 3rd year of operation, is available to students in grades K-4. The program follows a 50-50 model in that approximately half of the school week is taught in Icelandic, the other half in English. Language and content are taught in both languages. The Icelandic stream follows the national curriculum for Icelandic and mathematics.
Skólaárið 2010-2011 verður boðið upp á tvær mismunandi námsleiðir fyrir nemendur í 1.-4. bekk, annarsvegar námsleið með megináherslu á íslensku og tvítyngi en hinsvegar námsleið þar sem enskan er í fyrirrúmi. Báðir hóparnir verða í sama kennslurýminu til þess að auka á samvinnu og vinna með tvítyngi. Börnin á ensku námsleiðinni fá innsýn inn í íslenskt mál og íslenska menningu. Aðalnámskrá grunnskóla í íslensku og stærðfræði verður höfð til hliðsjónar fyrir nemendur á íslensku námsbrautinni. Nemendur af báðum námsleiðum ásamt nemendum Sjálandsskóla eiga kost á því að kynnast betur á námskeiðum sem haldin eru eftir skóla. Sjá einnig grein hér fyrir neðan er birtist í Garðarpóstinum 27. nóvember 2008.
Alþjóðaskólinn býður fjölbreytt og spennandi nám
-Ný námsleið þar sem kennt er á íslensku og ensku
Í húsnæði Sjálandsskóla er starfræktur einkaskóli – Alþjóðaskólinn – en þar stunda um 40 nemendur af ýmsum þjóðernum nám í 1. - 7. bekk og eftir áramót tekur fimm ára deild til starfa. Samstarf skólanna hefur verið mjög gott frá upphafi og lagt er upp með að báðir njóti góðs af veru hins. Berta Faber skólastjóri Alþjóðaskólans og Guðrún Hanna Hilmarsdóttir aðstoðarskólastjóri leggja áherslu á að börnin öðlist alþjóðlega reynslu sem byggist á umburðarlyndi og samúð sem og virðingu fyrir íslenskri menningu. Sigríður Dóra Gísladóttir fékk þær stöllur til að segja frá starfsemi Alþjóðaskólans og samstarfinu.
„Markmiðið er að bjóða upp á örvandi námsumhverfi sem hvetur og styður við nemendur og sem hluti af okkar alþjóðlegu stefnu hvetjum við til tvítyngis og stefnum að frekari eflingu tungumálakennslu. Það að vera lítill einkaskóli inn í opinberum skóla býður upp á mikil tækifæri og það er sameiginleg stefna skólanna að læra sem mest af hvorum öðrum.“
Tvítyngd námsleið á íslensku og ensku
Nemendur Alþjóðaskólans eru flestir frá Evrópu en líka frá Ameríku, sendiráðsbörn eða börn foreldra sem starfa tímabundið á Íslandi. Einnig hefur íslenskum eða hálfíslenskum börnum fjölgað við skólann og því var farið út í að stofna svokallaða tvítyngda leið sem fer fram bæði á ensku og íslensku. „Við byrjuðum í haust í 1. og 2. bekk og þetta hefur gengið mjög vel. Þessi tvítyngda leið hentar þeim börnum þar sem annað foreldri er enskumælandi, þeim sem hafa búið erlendis í nokkur ár, hafa einungis verið í skóla þar og eru búin að læra á ensku. Þarna fá þau mikla íslenskukennslu en halda jafnframt enskunni.“
Gagnkvæmur ávinningur skólanna
Fyrir utan samveru nemenda beggja skóla í frímínútum og á matartíma telja þær Berta og Guðrún Hanna nauðsynlegt að hafa skipulagða dagskrá sem krefst einhvers af nemendum og gefur þeim færi á að kynnast betur. „Við höfum til dæmis verið að bjóða nemendum Sjálandsskóla á fjölbreytt námskeið eftir skóla og Sjálandsskóli hefur boðið okkar nemendum að koma með í ýmsar vettvangsferðir. Við erum síðan nýfarin af stað með verkefni sem felur í sér að einn nemandi úr hverjum árgangi eyðir heilum skóladegi hjá hinum skólanum og greinir síðan öðrum nemendum frá reynslu sinni. Fyrirmyndin er fengin frá alþjóðlegum skóla í Kaupmannahöfn sem er einmitt til húsa í opinberum skóla eins og við. Hér innanhúss fer fram öflugt og skemmtilegt starf, húsakynnin eru frábær og við getum lært heilmikið af því sem Sjálandsskóli er að gera. Við vonum líka að Sjálandsskóli njóti góðs af veru okkur hér, en hugsunin á bakvið okkar samstarf er að ávinningurinn sé beggja.“
-sdg-
School Board (click on name to send an email)
Philip Bunch, Elizabeth Nunberg, Ágústa Bárðardóttir, Pamala Hansford, Berta Faber, Anna Sveinsdóttir
The International School of Iceland is a member of The Association of Independent Schools in Iceland
Alþjóðaskólinn á Íslandi er meðlimur í SSSA (Samtök sjálfstæðra skóla)